Jeep kynnir PHEV-línu

Rafmagnaðir jeppar frá Jeep.
Rafmagnaðir jeppar frá Jeep. Ljósmynd/Ísband

ÍSBAND umboðsaðili Jeep og RAM á Íslandi blæs til glæsilegrar og rafmagnaðrar jeppasýningar laugardaginn 2. október.  Þar verður 4xe Plug-In-Hybrid línan frá Jeep sýnd,  Jeep Wrangler Rubicon 4xe, Jeep Compass 4xe og Jeep Reneagde 4xe, alvöru jeppar með alvöru fjórhjóladrifi í Plug-In-Hybrid útfærslu.

Jeep Wrangler Rubicon 4xe verður sýndur í Launch Edition útgáfu sem er sérlega öflugur og vel útbúinn jeppi sem svo sannarlega hefur slegið í gegn.  Með alls 373 hestafla vél og 670 Nm í togi, 100% driflæsingum að framan og að aftan og með aftengjalegri jafnvægisstöng að framan.   Mjög vinsælt er að breyta Wrangler Rubicon og býður Breytingarverkstæði ÍSBAND upp á fjölbreytt úrval breytingapakka með 35”, 37” og 40” breytingum.  37” og 40” breyttir Wrangler Rubicon 4xe verða sýndir á sýningunni.  Verð á Jeep Wrangler Rubicon er frá: 9.899.000 kr.

Jeep Compass 4xe verður sýndur í þremur útfærslum. Í Limited og Trailhawk útfærslum sem nú þegar hafa vakið verðskuldaða athygli íslenskra bílakaupenda og frumsýndur verður Compass S, en hann kemur til landsins síðar á árinu.  Glæsileg og sportleg útfærsla, með Panorama glerþaki og á 19” felgum.

Um áramótin mun virðisaukaskattur hækka á Plug-In-Hybrid bíla.  Jeep Compass 4xe og Jeep Renegade 4xe Plug-In-Hybrid munu hækka um 480.000 kr. þar af leiðandi. Það er því tilvalið að tryggja sér núna alvöru jeppa með alvöru fjórhjóladrifi í forsölu, en áætlað er að bílarnir verði til afhendingar í desember.  Verð á Jeep Compass er frá: 6.699.000 kr. og Jeep Renegade kostar 5.750.000 kr.

Vinsælu RAM 3500 pallbílarnir verða einnig til sýnis á sýningunni.  Líkt og með Jeep þá býður Breytingarverkstæði ÍSBAND upp á breytingapakka fyrir RAM með 37” og 40” breytingum, en 40” breyttur RAM verður til sýnis.

Sýningin er opin á milli kl. 12-16 og er í sýningarsal ÍSBAND í Mosfellsbæ, Þverholti 6

mbl.is