Leigðu kastalann sem GOT-stjarna gifti sig í

Sophie Turner og Joe Jonas giftu sig í sumar.
Sophie Turner og Joe Jonas giftu sig í sumar. mbl.is/AFP

Game of Thrones-stjarnan Sophie Turner og tónlistarmaðurinn Joe Jonas giftu sig í guðdómlegum kastala í Frakklandi í sumar. Kastalinn er ekki bara eitthvað sem fræga fólkið hefur aðgang að þar sem hann er til útleigu á Airbnb.

Kastalinn er í Provence í suðausturhluta Frakklands. Kastalinn er frá 19. öld og hefur honum verið fallega haldið við og er sagður tilvalinn fyrir fjölskyldusamkomur eða sérstök tilefni en pláss er fyrir 15 gesti. Turner og Jonas völdu kastalann að minnsta kosti fyrir ansi sérstakt tilefni, brúðkaupsveislu sína. 

Þrátt fyrir að kastalinn sé til leigu á Airbnb er ekki þar með sagt að hin venjulega stórfjölskylda eigi kost á því að taka kastalann á leigu enda kostar nóttin vel yfir hálfa milljón. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert