Varla pláss fyrir Hafþór Júlíus í venjulegu sæti

Hafþór Júlíus Björnsson sýndi hvernig fór um hann og eiginkonu …
Hafþór Júlíus Björnsson sýndi hvernig fór um hann og eiginkonu hans, Kelsey Henson, í flugvél. Skjáskot/Instagram

Vöðvatröllið Hafþór Júlíus Björnsson, betur þekktur sem Fjallið, er gott dæmi um mann sem þarf að fljúga á fyrsta farrými. Ástæðan er ekki bara frægðin og ríkidæmið heldur hversu stór hann er. 

Hafþór Júlíus býr á Íslandi en ferðast mikið með flugvélum vinnu sinnar vegna. Hann birti mynd af sér í flugvél í mjög litlu sæti og spurði hvort honum ætti að líða illa eða eiginkonu hans, Kelsey Henson. Hún sat við hlið hans og var ekki með neitt pláss ef svo mætti að orði komast. 

„Var ekki með neitt pláss í þessu flugi og Kelsey var jafnvel með minna,“ skrifaði Hafþór Júlíus á myndina sem hann birti. 

Hin kanadíska Kelsey Henson er töluvert minni en Hafþór Júlíus og hefur greinilega húmor fyrir muninum á þeim. „Eins gott að þú kvæntist lítilli manneskju,“ skrifaði hún í athugasemd við myndina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert