Hallgrímskirkja 38. fallegasta bygging heims

Hallgrímskirkja er meðal fimmtíu fallegustu bygginga heims, ef marka má …
Hallgrímskirkja er meðal fimmtíu fallegustu bygginga heims, ef marka má lista Big seven travel. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Ferðamannasíðan Big Seven Travel birtir árlega lista yfir fimmtíu fallegustu byggingar heims. Listi ársins 2021 hefur nú verið birtur og er Hallgrímskirkja í 38. sæti á listanum. Síðan notaðist við könnun á netinu þar sem rúmlega 127 þúsund manns tóku þátt í að velja listann.

Í umfjöllun síðunnar um Hallgrímskirkju segir að kirkjan sé sú stærsta á Íslandi og einnig er minnst á orgel kirkjunnar, en það þykir stórt á heimsmælikvarða.

Segja má að flestallar frægustu byggingar heims finnist á listanum en þó er þokkaleg fjölbreytni í vali. Byggingar af ýmsum toga eru á listanum, allt frá munkaklaustrum yfir í skýjakljúfa Mið-Austurlanda.

Efstu þrjú sæti listans skipa afar glæstar byggingar. Í þriðja sæti er dómkirkjan í Flórens. Í öðru sæti er síðan Versalahöll í París. Efsta sæti listans hreppir þó Taj Mahal í Indlandi. Kannski ekki furða en auðveldlega má færa rök fyrir því að höllin sé þekktasta bygging heims.

Listann má nálgast hér.   

Taj Mahal er í efsta sæti listans
Taj Mahal er í efsta sæti listans AFP
Speglasalurinn í Versölum. Versalahöll er í öðru sæti listans.
Speglasalurinn í Versölum. Versalahöll er í öðru sæti listans. Photo: Myrabella / Wikimedia Commons, via Wikimedia Commons



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson