Tískuhönnuður kynnti prinsinn og Markle

Harry Bretaprins og Meghan Markle brostu sínu breiðasta í gær.
Harry Bretaprins og Meghan Markle brostu sínu breiðasta í gær. AFP

Hin nýtrúlofuðu Harry Bretaprins og Meghan Markle greindu frá því í gær að sameiginleg vinkona þeirra hefði kynnt þau sumarið 2016 en í framhaldinu fóru Harry og Meghan á blint stefnumót.

Breskir fjölmiðlar hafa reynt að komast að því hver vinkonan er sem á heiðurinn af því að hafa kynnt parið. Sky News telur líklegast að umrædd vinkona sé tískuhönnuðurinn Misha Nonoo.

Markle klæddist einmitt skyrtu sem Nonoo hannaði þegar parið lét sjá sig opinberlega saman í haust. Nonoo og Markle eru perluvinkonur.

Markle í skyrtunni góðu.
Markle í skyrtunni góðu. AFP

Nonoo ólst upp í Barein og London en fatnaður sem hún hannar þykir einfaldur og þægilegur. Hún var gift Alexander Gilkes, sem er gamall vinur Harrys.

Nonoo var feimin þegar hún var spurð út í tengsl hennar og konunglega parsins í viðtali við Evening Standard í síðasta mánuði. Hún sagði að Markle væri mjög góð vinkona og „svalasta stelpa í heimi“.

Frétt Sky News.

Hringurinn er stórglæsilegur.
Hringurinn er stórglæsilegur. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert