Luc Besson sakaður um nauðgun

Franski leikstjórinn Luc Besson.
Franski leikstjórinn Luc Besson. AFP

Leikkona hefur sakað franska kvikmyndaleikstjórann Luc Besson um nauðgun og hefur lögreglan í París hafið rannsókn á málinu.

„Luc Besson neitar þessum ímynduðu ásökunum harðlega,“ sagði lögmaður Bessons, Thierry Marembert, við AFP-fréttastofuna.

Hann bætti við að leikstjórinn þekki konuna sem lagði kæruna fram og sagði að hann hefði aldrei hegðað sér á óviðeigandi hátt í hennar garð.

Á meðal þekkustu kvikmynda Bessons eru La Femme Nikita, The Fifth Element og Leon.

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert