Börn dregin út úr rústunum

Svæðið er í rúst eftir sprenginguna sem varð í verksmiðjunni.
Svæðið er í rúst eftir sprenginguna sem varð í verksmiðjunni. AFP

Börn hafa fundist á lífi í rústum byggingar sem jafnaðist við jörðu í bænum Sarmada í sýrlenska héraðinu Idlib eftir að sprenging varð í vopnageymslu.

Í myndbandi á vefsíðu BBC sést þegar björgunarsveitarmenn draga börn út úr rústunum.

Að minnsta kosti 39 manns fórust í sprengingunni, þar á meðal 12 börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert