Taugaáfall flugstjóra ástæða slyss

AFP

Niðurstaða flugslysanefndar í Nepal á flugslysi sem kostaði 51 lífið er að rekja megi slysið til taugaáfalls flugstjórans eftir að hæfileikar hans höfðu verið dregnir í efa.

Í skýrslu flugslysanefndar, sem var lekið til fjölmiðla í dag, er fjallað um flugslysið 12. mars þegar farþegavél, sem var að koma frá höfuðborg Bangladess, Dhaka, brotlenti á flugvellinum í Katmandú, rann út af flugbrautinni og hafnaði á fótboltavelli þar sem kviknaði í flugvélinni. 

Samkvæmt skýrslu flugslysanefndar var flugstjórinn hjá US-Bangla Airlines undir miklu álagi og í tilfinningalegu ójafnvægi í kjölfar þess að samstarfskona hans dró í efa hæfni hans sem góðs leiðbeinanda í starfi. Flugstjórinn réð ekki við vantraustið, brast ítrekað í grát og keðjureykti í flugstjórnarklefanum. 

Flugstjórinn, sem áður var flugstjóri í flugher Bangladess og starfaði sem leiðbeinandi hjá flugfélaginu US-Bangla, talaði látlaust allt flugið og reyndi að vekja hrifningu hjá unga flugmanninum. Þetta varð til þess að flugmaðurinn missti einbeitinguna við stjórn flugvélarinnar og brotlenti henni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert