Cesar Sayoc, maðurinn sem var handtekinn fyrr í dag, grunaður um að hafa sent bréfsprengjur til fólks sem hefur gagnrýnt Donald Trump Bandaríkjaforseta, hefur verið ákærður fyrir fimm alríkisglæpi.
Sayoc er ákærður fyrir að hafa sent fjölda bréfsprengja til þekktra einstaklinga sem gagnrýnt hafa Donald Trump Bandaríkjaforseta. Christopher Wray, yfirmaður bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, staðfesti þetta á blaðamannafundi fyrir skömmu og varar hann við að fleiri bréfsprengjur eigi eftir að finnast.
Þá er Sayoc einnig ákærður fyrir flytja sprengiefni milli ríkja og fyrir að póstleggja sprengiefni. Sömuleiðis er hann ákærður fyrir hótanir gegn fyrrverandi forsetum Bandaríkjanna.
Ef málið endar fyrir dómi getur Sayoc átt yfir höfði sér 58 ára fangelsisdóm.