Grunsamlegur pakki sem stílaður er á demókratann Cory Booker hefur fundist í Flórída, samkvæmt bandarísku alríkislögreglunni FBI. Reynist sprengja í pakkanum, sem er að sögn FBI áþekkur þeim sem þegar hafa fundist, hafa alls ellefu bréfsprengjur verið sendar til háttsettra demókrata og annarra gagnrýnenda Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í vikunni.
Cory Booker er þingmaður Demókrataflokksins frá New Jersey, en pakkanum var veitt athygli á póstdreifingarstöð í Flórídaríki. Samkvæmt frétt Washington Post er bandaríska alríkislögreglan að skoða hvort hluti bréfsprengjanna sem nú þegar hafa fundist hafi verið sendur frá suðurhluta Flórídaríkis.
Lögreglan í New York rannsakar einnig grunsamlegan pakka sem fannst í New York í dag. Sá var stílaður á James Clapper, sem starfaði sem þjóðaröryggisráðgjafi í ríkisstjórn Baracks Obama. Heimilisfangið á pakkanum voru höfuðstöðvar fjölmiðilsins CNN, samkvæmt frétt New York Times.