Donald Trump Bandaríkjaforseti hrósaði fyrir stundu bandarísku alríkislögreglunni FBI fyrir „lygilegt starf“ eftir að maður var handtekinn á Flórída vegna bréfsprengja sem sendar hafa verið að undanförnu til þekktra einstaklinga sem gagnrýnt hafa Trump.
„Svona hryðjuverk eru fyrirlitleg og eiga ekki heima í landinu okkar,“ sagði Trump í ávarpi úr Hvíta húsinu.
„Ég hef sagt löggæsluyfirvöldum að spara ekki mannafla eða kostnað við að finna þá sem bera ábyrgð á þessu,“ bætti forsetinn við.
„Við megum aldrei leyfa pólitísku ofbeldi að skjóta rótum í Bandaríkjunum. Við verðum að sýna heiminum að við stöndum saman í friði og ást, ein heild sem bandarískir ríkisborgarar.“