100 látnir eftir árás á lítið þorp

Flóttamannabúðir í Faladie, Malí. Fjölmargir hafa flúið ofbeldi og áskóknir …
Flóttamannabúðir í Faladie, Malí. Fjölmargir hafa flúið ofbeldi og áskóknir víðsvegar um landið. AFP

Tæplega hundrað manns eru látnir eftir árás á lítið og frumstætt þorp í Malí. Íbúar þorpsins tilheyra Dogon-þjóðarbrotinu.

Árásin átti sér stað í Sobane-Kou, nálægt bænum Sanga. Lík hinna látnu hafa verið brennd eftir því sem fram kemur á BBC og er fleiri leitað.

Síðustu mánuði hafa mannskæðar árásir í Malí verið tíðar og hafa trúarofstækismenn meðal annars myrt fjölda almennra borgara í smærri þorpum.

Dogon-þjóðarbrotið hefur lengi átt í erjum við Fulani-hjarðmenn og segir bæjarstjóri nærliggjandi þorps að Fulani-menn frá umdæmi sínu hafi ráðist á Sobane-Kou í skjóli nætur.

Í mars voru yfir 130 Fulani-þorpsbúar myrtir af vopnuðum mönnum sem voru klæddir hefðbundnum Dogon klæðum á sama svæði.

Þá hafa árekstrar á milli hópanna tveggja aukist enn frekar síðan liðsmenn Ríkis íslam náðu fótfestu í Norður-Malí árið 2012.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert