„Fáfróð og móðgandi"

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að yfirlýsingin sem írönsk stjórnvöld sendu frá sér vegna nýjustu efnahagsþvingana Bandaríkjastjórnar vera bæði fáfróða og móðgandi.

Þetta kom fram í tísti forsetans eftir að Hassan Rouhani, forseti Írans, sagði að ákvörðunin um þvinganirnar sýndu að Hvíta húsið væri „andlega vanheilt“,“ að því er BBC greindi frá. 

Trump sagði í tísti sínu að leiðtogar Írans séu úr takti við raunveruleikann. Bætti hann við að þvinganirnar í gær væru viðbrögð við „herskárri hegðun“ Írans. Hann sagði að árás Írans á  „eitthvað bandarískt“ verði svarað af gríðarlegum krafti. 

Efnahagsþvingununum var meðal annars beint að Ayatollah Ali Khamenei erkiklerki og æðsta ráðamanni Írans.

Hassan Rouhan, forseti Írans.
Hassan Rouhan, forseti Írans. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert