Barn á meðal látinna eftir sjálfsmorðssprengjuárás

Frá Mogadishu í febrúar.
Frá Mogadishu í febrúar. AFP

Fimm borgarar, barn þar á meðal, létust í dag þegar sjálfsmorðssprengjumaður sprengdi sig við tehús í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu.

Atvikið varð um klukkan sjö í kvöld að staðartíma, eða um klukkan 16 að íslenskum tíma.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að ungmenni sæki gjarnan tehúsið. Létust fjögur ungmenni, eitt barn auk sjálfsmorðssprengjumannsins.

„Fjórir til viðbótar særðust,“ segir talsmaður lögreglunnar, Sadiq Dudishe, í yfirlýsingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert