Púað á Boris Johnson

Nokkur fjöldi fólks var kominn saman fyrir utan Downingstræti 10, bústað breska forsætisráðherrans, til að berja Boris Johnson augum í gær þegar hann mætti fjölmiðlum og flutti ræðu þar sem hann staðfesti afsögn sína. 

Líkt og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði var fögnuðurinn ekki mikill, þvert á móti púuðu fjölmargir á forsætisráðherrann sem sagði í ræðu sinni að hann væri sorgmæddur að vera að hætta í besta starfi í heimi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert