Þrjú börn á meðal látinna eftir flugskeytaárás

Barn borið úr rústunum á veitingastaðnum.
Barn borið úr rústunum á veitingastaðnum. AFP/Genja Savílov

Tala yfir fjölda látinna er komin í níu og þar á meðal eru þrjú börn eftir flugskeytaárás rússneska hersins á veitingastað í bænum Kramatorsk í austurhluta Úkraínu. 56 voru særðir í árásinni.

Árásin var gerð í gærkvöldi og hefur staðfestum dauðsföllum fjölgað á síðustu klukkutímum á meðan reynt er að bjarga fólki úr rústunum.

Veitingastaðurinn, Ría Pizza, er vinsæll staður fyrir bæði hermenn og blaðamenn en ekki hefur fengist staðfest hvort að þeir séu meðal þeirra látnu. Ljóst er þó að almennir borgarar féllu í árásinni. 

Stjórnvöld í Úkraínu segja að leitar- og björgunaraðgerðir standi enn yfir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert