Norski olíusjóðurinn hagnaðist um meira en 100 milljarða Bandaríkjadala á fyrstu þremur mánuðum ársins. Hagnaðurinn samsvarar rúmlega 14 billjónum íslenskra króna.
Heildarvirði sjóðsins nemur nú rúmum 225 billjónum íslenskra króna.
„Hlutabréfafjárfestingar okkar skiluðu mjög sterkri ávöxtun á fyrsta ársfjórðungi, sérstaklega fjárfestingar í tæknigeiranum,“ segir aðstoðarforstjóri sjóðsins, Trond Grande.
Ávöxtun sjóðsins nam 6,3% á fyrstu þremur mánuðum ársins.
Hlutabréfaeign sjóðsins skilaði honum töluverðri ávöxtun, eða 9,1%. Velgengnina má rekja til hækkunar á hlutabréfamarkaði þar sem útlit er fyrir lækkandi vexti.
Skuldabréfafjárfestingar sjóðsins lækkuðu um 0,4% á sama tímabili. Fasteignir og eignir í óskráðum endurnýjanlegum orkuverkefnum lækkuðu um 0,5 og 11,4%
Olíusjóður Norðmanna er sá stærsti sinnar tegundar í heiminum. Sjóðurinn var stofnaður árið 1990 og miðar að því að fjármagna framtíðarútgjöld í hinu rausnarlega velferðarríki Noregs þar sem gert er ráð fyrir að tekjur af olíu- og gasútflutningi minnki til lengri tíma litið.
Gera má ráð fyrir að olíusjóðurinn nemi nú rúmri 41 milljón á hvern Norðmann en íbúafjöldi landsins er um 5,5 milljónir.