Kröftugur skjálfti reið yfir Taívan

Mynd sýnir eftirköst skjálftans að stærðinni 7,4 sem reið yfir …
Mynd sýnir eftirköst skjálftans að stærðinni 7,4 sem reið yfir eyjuna fyrr í mánuðinum. AFP

Jarðskjálfti að stærðinni 6,3 reið yfir Taívan fyrr í kvöld. Skjálftinn reið yfir um hálf þrjú að nóttu að staðartíma, eða um kl. 18.30 að íslenskum tíma.

Mikil skjálftavirkni hefur mælst á eyjunni undanfarið og er skjálftinn hluti af hrinu skjálfta sem riðið hefur yfir í landinu síðasta sólarhringinn. 

Fyrsti skjálfti hrinunnar mældist 5,5 að stærð. Stuttu síðar mældust tveir skjálftar að stærð 6,0 og 6,3. 

Skjálfti að stærðinni 7,4 reið yfir eyjuna þann 3. apríl, en hið minnsta sautján létu lífið í kjölfar skjálftans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka