Smyglari áfram í haldi

Fíkniefni sem fundust í flutningaskipi í Straumsvíkurhöfn nýlega.
Fíkniefni sem fundust í flutningaskipi í Straumsvíkurhöfn nýlega. mbl.is/Júlíus

Karl á sextugsaldri hefur á grundvelli almannahagsmuna verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 3. janúar  að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um aðild að innflutningi á verulegu magni af fíkniefnum og sterum. Maðurinn hefur kært úrskurðinn til Hæstaréttar.

Fíkniefnin og sterarnir sem um ræðir fundust við leit lögreglu og tollgæslu í gámi sem kom til landsins í október og var maðurinn handtekinn í kjölfarið. Rannsókn málsins hafði staðið yfir í alllangan tíma og verið unnin í samvinnu við tollgæsluna. Karl á fimmtugsaldri er einnig í gæsluvarðhaldi í tengslum við sama mál en sá hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Um 10 kg af amfetamíni reyndust vera falin í umræddum gámi sem kom með skipi í Straumsvíkurhöfn. Við leit í gámnum fundust einnig um 200 grömm af kókaíni, rúmlega 8 þúsund e-töflur og verulegt magn af sterum, bæði í töflu- og vökvaformi. Skipið kom hingað frá Rotterdam í Hollandi.

Götuverð fíkniefnanna sem fundust í Straumsvíkurhöfn er áætlað um 300 milljónir króna. Smyglið var mjög umfangsmikið og efnin sterk að sögn lögreglu. Þrír rannsóknarlögreglumenn hafa unnið sleitulaust að rannsókn málsins síðan snemma á þessu ári.

Ekkert bendir til þess að fyrirtækið sem átti vörurnar í gámnum hafi nokkuð komið nálægt smyglinu en maðurinn sem nú hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 3. janúar var starfsmaður þess og nýtti sér þá löglegu starfsemi sem þar var í gangi sem smyglleið. Sá hefur ekki komið við sögu lögreglu áður en hinn maðurinn, sem talinn er höfuðpaurinn, hefur áður hlotið dóma fyrir fíkniefnabrot.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert