Próflaus og dópaður undir stýri

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Lögreglan stöðvaði för bifreiðar um hálf átta leytið í gærkvöldi í Rofabæ. Ökumaðurinn var undir áhrifum fíkniefna og hefur aldrei fengið bílpróf. 

Á fjórða tímanum í nótt var síðan annar ökumaður stöðvaður í Kópavogi en sá ver einnig undir áhrifum fíkniefna auk þess sem hann var með fíkniefni í fórum sínum.

Um hálf eitt í nótt voru höfð afskipti af þremur ungum mönnum sem voru með fíkniefni í fórum sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert