Síðasta hrunmálið tekið fyrir í dag

Hreiðar Már Sigurðsson og Guðný Arna Sveinsdóttir eru ákærð í …
Hreiðar Már Sigurðsson og Guðný Arna Sveinsdóttir eru ákærð í málinu.

Aðalmeðferð í innherja- og umboðssvikamáli tengdu félaginu Hreiðar Már Sigurðsson ehf. hefst í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur, en um er að ræða síðasta hrunmálið sem var þingfest. Gert er ráð fyrir að aðalmeðferð þess taki tvo daga, en þetta er 23. málið sem embætti sérstaks saksóknara og síðar héraðssaksóknara höfðaði í tengslum við fall fjármálakerfisins.

Í málinu er Hreiðar Már Sig­urðsson, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaupþings, sakaður um að hafa mis­notað aðstöðu sína og stefnt fé bank­ans í veru­lega hættu þegar hann lét bank­ann veita einka­hluta­fé­lag­inu Hreiðar Már Sig­urðsson ehf. 574 millj­óna króna ein­greiðslu­lán í ág­úst 2008. Er hann ákærður fyr­ir umboðssvik og inn­herja­svik.

Guðný Arna Sveins­dótt­ir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri Kaupþings, var ákærð fyr­ir hlut­deild í umboðssvik­um með því að hafa veitt liðsinni í verki við að koma þeim fram. Einkum með fyr­ir­mæl­um og sam­skipt­um við lægra setta starfs­menn bank­ans síðari hluta ág­úst­mánaðar 2008. 

Í ákær­unni seg­ir að lánið hafi verið veitt án samþykk­is stjórn­ar bank­ans og án þess að full­nægj­andi trygg­ing­ar væru fyr­ir end­ur­greiðslu þess. Hafi einu trygg­ing­ar láns­ins verið all­ir hlut­irn­ir í einka­hluta­fé­lag­inu, sem fyr­ir hafi verið veðsett­ir vegna eldri skulda fé­lags­ins og því ekki nægi­legt veðrými til staðar fyr­ir nýja lánið.

Lánið var nýtt til að kaupa hluti í bank­an­um fyr­ir 571 millj­ón krón­ur, en sama dag hafði Hreiðar í eig­in nafni sam­kvæmt kauprétti keypt sömu hluti fyr­ir 246 millj­ón­ir.

Hreiðar Már hefur samtals verið ákærður í fimm málum frá hruni. Hann fékk fimm og hálfs árs dóm í al Thani-málinu. Við það bættist hálfs árs fangelsi í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings og var hann þar með kominn upp í hámark refsiramma fyrir þennan brotaflokk. Í Marple-málinu var refsing hans hins vegar þyngt með eins árs hegningarauka, en slíkt er heimilt þegar um ítrekuð brot er að ræða. Hefur hann áfrýjað þeim dómi til Landsréttar. Þá var Hreiðar einnig ákærður í CLN-málinu svokallaða sem var vísað frá héraðsdómi nýlega, en sá úrskurður var kærður af saksóknara.

Guðný hafði áður verið ákærð í Marple-málinu, en hún var sýknuð í héraðsdómi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert