Námsmannagarðar rísa í Grafarholti

Tölvuteiknuð mynd af námsmannagörðum í Grafarholti þar sem til stendur …
Tölvuteiknuð mynd af námsmannagörðum í Grafarholti þar sem til stendur að reisa 52 nýjar íbúðir. Mynd/Kanon arkitektar

Námsmannaíbúðum á vegum byggingarfélags námsmanna mun fjölga um 52 í Grafarholti samkvæmt nýju deiliskipulagi.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að borgarráð hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem Kanon arkitektar hafa gert fyrir hönd byggingarfélags námsmanna. Breytt deiliskipulag við Klausturstíg 1-11 og Kapellustíg 1-13 í Grafarholti gerir ráð fyrir að námsmannaíbúðum á lóðinni fjölgi um 52 en þar eru nú þegar 200 íbúðir.

Byggð verða fjögur ný hús á lóðunum ásamt geymslu fyrir starfsemi byggingarfélags námsmanna. Byggingarmagn á lóðinni verður aukið um 3.300 fermetra, úr 11.000 fermetrum í 14.300 fermetra. Gert er ráð fyrir 0,8 bílastæðum á hverja íbúð eða 202 stæðum og hjólastæði fyrir a.m.k. eitt reiðhjól í hjólageymslu eða hjólastæði fyrir hverja íbúð á lóðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert