Tveir ferðamenn sviptir á staðnum

Af vettvangi í gær.
Af vettvangi í gær. Lögreglan á Suðurlandi

Lögreglan á Suðurlandi svipti tvo ökumenn ökuréttindum á staðnum í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi á Mýrdalssandi í gær. Um var að ræða erlenda ferðamenn sem voru í samfloti á tveimur bifreiðum. Bifreiðunum var ekið á 163 km hraða.

Að sögn lögreglu tóku farþegar úr bifreiðunum við akstri þeirra en um er að ræða ökuleyfissviptingu í tvo mánuði.

Samkvæmt Samgöngustofu bíður ökumanns, sem ekur á 163 km hraða þar sem heimilt er að keyra á 90 km/klst. 240.000 króna fjársekt, svipting ökuleyfis í 3 mánuði og 3 refsipunktar í ökuferilsskrá.

Þá segir lögreglan, að alls hafi 11 ökumenn verið kærðir fyrir hraðakstur á Mýrdalssandi og kringum Vík í Mýrdal í gær.

Aðrir ökumenn en þeir sem að framan geinir óku á 142, 141 og 136 km hraða og neðar. Um var að ræða sex erlenda ferðamenn og fimm Íslendinga.

Þá ók einn ökumaður á 95 km hraða í gegnum þorpið í Vík en þar er 50 km hámarkshraði. Samtals munu þessir ökumenn þurfa að greiða rúmlega eina milljón króna í sekt. Þá voru einnig 10 aðrir ökumenn kærðir annars staðar í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi í gær eða alls 21 ökumaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert