Gunnar nýr formaður Bændasamtakanna

Gunnar Þorgeirsson.
Gunnar Þorgeirsson. mbl.is/​Hari

Gunnar Þorgeirsson hefur verið kjörinn nýr formaður Bændasamtaka Íslands. Frá þessu er greint á vef Bændablaðsins.

Kosning fór fram fyrr í dag. Fram kemur að Gunnar Þorgeirsson, garðyrkjubóndi í Ártanga, hafi boðið sig fram til formennsku á móti Guðrúnu S. Tryggvadóttur, sitjandi formanni. Gunnar fékk átta atkvæðum meira en Guðrún, eða 29 atkvæði gegn 21.

Í kjölfar formannskosningar er kosið til stjórnarsetu í BÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert