Maðurinn sem átti húsið í Kaldaseli sem gjöreyðilagðist í bruna í vikunni segir litlu hafa munað að hann yrði sjálfur eldinum að bráð. Atburðurinn hafði mikil og djúpstæð áhrif á hann.
Þetta kemur fram í facebookfærslu Haraldar Rafns Pálssonar, eiganda hússins og lögfræðings, þar sem hann lýsir yfir þakklæti til sinna nánustu og biðlar til allra að vera með eldvarnamál í lagi.
Haraldur hafði nýlega fest kaup á húsinu sem brann ásamt öllu innbúi. Hann slapp naumlega með væga reykeitrun og skrámur en „litlu munaði að ég yrði sjálfur bráð eldsins“, segir hann í færslunni. Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rannsakar eldsupptökin.
„Fyrir einhverja óskiljanlega ástæðu vaknaði ég upp af værum svefni og náði naumlega að átta mig á aðstæðum og koma mér út, án teljandi meiðsla, fyrir utan væga reykeitrun og nokkrar skrámur. Aðeins nokkrar sekúndur réðu þar úrslitum og á tímabili hélt ég að þetta væru mín örlög og endir,“ skrifar Haraldur.
Hann segist skrifa færsluna fyrst og fremst til að biðja alla um að kanna stöðu mála á reykskynjurum og eldvörnum heima hjá sér og svo til að þakka öllum sem hafa sent honum kveðjur og sýnt honum stuðning.
Kæru vinir, i ljósi atburða seinustu daga þykir mér tilefni til að koma eftirfarandi á framfæri: Eins og eflaust margir...
Posted by Haraldur Rafn Palsson on Wednesday, 27 January 2021