Telur að altjón hafi orðið í Kaldaseli

Varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir að þegar hús brennur eins mikið og í Kaldaseli í Breiðholti sé það nánast ónýtt. Það sem ekki eyðilagðist í reyknum hafi vatnið og frostið eyðilagt. Telur hann að um altjón sé að ræða.

Tryggingafélag og eigandi hússins muni í framhaldinu koma sér saman um hvort húsið verði byggt þarna aftur.

Ekki er ljóst varð til þess að eldurinn kviknaði í þaki einbýlishússins. Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rannsakar eldsupptökin.

Heimir Ríkharðsson lögreglufulltrúi segist ekki vita hvenær hún lýkur störfum. Þangað til getur hann ekkert sagt til um eldsupptökin.

Einn var í hús­inu og tókst hon­um að kom­ast út úr því.

Slökkviliðið var kallað að húsinu að morgni mánudags. Slökkvistarfinu lauk síðar um daginn. Eldur kviknaði aftur í þakinu um kvöldið og náðist að slökkva hann síðar sama kvöld. 

Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna eldsins.
Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna eldsins. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert