Eldur logar í húsinu að nýju

Frá vettvangi.
Frá vettvangi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins berst nú við eld sem kviknaði í rústum einbýlishússins í Kaldaseli í Breiðholti sem kviknaði í snemma í morgun. 

„Það kviknaði aftur í þakinu og það er töluverður eldur og reykur. Við erum með allar stöðvar á staðnum,“ segir varðstjóri í samtali við mbl.is. 

„Við vonum að þetta taki ekki langan tíma, við erum að vinna í þessu núna. Þetta gerist stundum eftir stórbruna og þess vegna erum við oft með vaktir á staðnum. Við héldum að það væri liðinn nógu langur tími,“ segir varðstjórinn. 

Fyrst var tilkynnt um elds­voðann um 6:40 í morgun.

mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert