Vatnstjón í kjallara á Siglufirði

Siglufjörður.
Siglufjörður. mbl.is

Vonskuveður hefur gengið yfir landið í dag og óeðlilega mikið snjóað að sögn veðurfræðings. Lögreglan á Akureyri segir að veðrið sé gengið niður núna en í dag hafi orðið vatnstjón á kjallara á Siglufirði þegar úrkoman var sem mest.

„Þetta gerðist út af mikilli úrkomu, vatnið safnaðist saman við hús og flæddi niður,“ segir lögreglumaður á Akureyri í samtali við mbl.is.

Akureyri í dag.
Akureyri í dag. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Hann segir snjókomuna sem var í morgun fljótt hafa breyst í rigningu. Nú sé veðrið þó gengið niður.

„Það er allt eins og blómstrið eina í augnablikinu allavega.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka