Víða snjókoma í dag

Snjór er yfir öllu á höfuðborgarsvæðinu.
Snjór er yfir öllu á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í dag er spáð austlægri eða breytilegri átt, 10-18 metrum á sekúndu, en hægari á Norður- og Austurlandi.

Gular viðvaranir eru jafnframt í gildi á landinu.

Snjókoma verður með köflum nokkuð víða og frost 1 til 8 stig. Lægir og styttir upp á sunnanverðu landinu síðdegis, en fer þá að bæta í vind og ofankomu norðanlands.

Á morgun verður norðlæg átt, 8-15 m/s og él, en þurrt og bjart sunnan heiða. Dregur úr vindi og éljum síðdegis. Vaxandi austanátt verður á Suður- og Vesturlandi seint annað kvöld.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert