Hefja frumkvæðisúttekt á eftirliti MAST

Íbúi í Borgarnesi birti mynd af einum hestinum í gær.
Íbúi í Borgarnesi birti mynd af einum hestinum í gær. Ljósmynd/Steinunn Árnadóttir

Ríkisendurskoðun hefur ákveðið að hefja frumkvæðisúttekt á eftirliti Matvælastofnunar með velferð dýra og verður niðurstaðan birt í opinberri skýrslu til Alþingis.

Áætlun um afmörkun og framkvæmd úttektarinnar liggur ekki fyrir en slík áætlun verður endurskoðuð eftir því sem úttektinni vindur fram, að því er fram kemur í tilkynningu stofnunarinnar.

MAST hafi fengið margar tilkynningar

Íbúi í Borgarnesi greindi í gær frá illri meðferð á hestum sem voru til húsa í hesthúsahverfi í grennd við bæinn. Sagði hún þá vannærða og lokaða inni í hesthúsi á daginn þar sem væri afar þröngt um þá. Taldi hún að þeim væri einungis hleypt út í gerði að nóttu til.

Í samtali við mbl.is sagðist hún oft hafa haft samband við MAST vegna vanrækslu hestanna en einungis fengið þau svör að málið væri í ferli. Þá kvaðst hún hafa fengið margar ábendingar frá fólki sem einnig hefði haft samband við MAST vegna hrossanna.

Stjórn Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands skor­aði í dag á MAST að sinna án taf­ar lög­bundn­um skyld­um sín­um varðandi vel­ferð hrossa sem eru í neyð í Borg­ar­byggð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert