Útskrifaðist með einkunnina 9,87

Guðrún Edda Min Harðardóttir hlaut hæstu einkunn á stúdentsprófi með …
Guðrún Edda Min Harðardóttir hlaut hæstu einkunn á stúdentsprófi með einkunnina 9,87. Ljósmynd/Flensborgarskólinn

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði brautskráði 43 nemendur frá skólanum 20. desember en hæstu einkunn hlaut Guðrún Edda Min Harðardóttir, 9,87 á stúdentsprófi. Er þetta með hæstu lokaeinkunnum við skólann.

Guðrún Edda hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í raungreinum á stúdentsprófi frá Háskólanum í Reykjavík. Einnig hlaut hún styrk frá Rio Tinto og verðlaun fyrir góðan árangur í ensku og íslensku á stúdentsprófi. Þá hlaut hún viðurkenningu frá Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar fyrir góðan árangur á stúdentsprófi. Elísabet Anna Pétursdóttir var með næsthæstu einkunn á stúdentsprófi, af félagsvísindabraut. Hún fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í spænsku, þetta kemur fram í tilkynningu frá Flensborgarskólanum.

Hrannar Björnson, meistaranemi í skapandi skrifum við Sarah Lawrence College …
Hrannar Björnson, meistaranemi í skapandi skrifum við Sarah Lawrence College í New York fylki hlaut styrk úr fræðslusjóði Jóns Þórarinssonar. Ljósmynd/Flensborgarskólinn

Meistaranemi í skapandi skrifum hlaut styrk úr fræðslusjóði

Einnig var veittur styrkur, kr. 500.000, úr fræðslusjóði Jóns Þórarinssonar en hann hefur verið veittur á hverri útskrift á jólum frá 1992. Hrannar Björnsson, meistaranemi í skapandi skrifum við Sarah Lawrence College í New York-ríki, er styrkþegi sjóðsins að þessu sinni en hann stefnir á að ljúka framhaldsnámi sínu í Bandaríkjunum næsta vor með meistaraverkefni sínu þar sem hann hefur þróað sín ritverk með yfirnáttúrlegu sniði þar sem oft eru séríslensk fyrirbæri fyrri tíma mætt í bandarískar kringumstæður segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert