Boða til blaðamannafundar um nýja þjóðarhöll

Frá landsleik í Laugardalshöllinni.
Frá landsleik í Laugardalshöllinni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Forsætisráðuneytið, mennta- og barnamálaráðuneytið og Reykjavíkurborg hafa boðað til blaðamannafundar um nýja þjóðarhöll á morgun.

Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu segir að á fundinum verði farið yfir „áætlaða stærð, staðsetningu, byggingarkostnað, notkun og notendur Þjóðarhallar, ásamt tengingu við önnur íþróttamannvirki, stöðu deiliskipulags og útboðs, og fyrirhuguð verklok“.

Verður hann haldinn klukkan 11.30 á VOX Club á hótelinu Hilton Reykjavík Nordica.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert