Slökktu elda til klukkan tvö í nótt

Slökkviliðsmenn hefjast handa að nýju klukkan 8.
Slökkviliðsmenn hefjast handa að nýju klukkan 8. mbl.is/Árni Sæberg

Unnið var að því að slökkva gróðurelda í nágrenni eldgossins við Litla-Hrút þangað til klukkan var um tvö í nótt, að sögn Daníels Karlssonar, varðstjóra hjá slökkviliði Grindavíkur.

„Þetta gekk alveg, við náðum að slökkva minni eldinn alla vega sem var við göngustíginn,“ segir Daníel í samtali við mbl.is.

Hann segir að klukkan 8 hefjist undirbúningur slökkviliðsmanna og svo í kjölfarið verður hafist handa að nýju við slökkvistörf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert