Beint: Undirbúningur Sundabrautar

Vegagerðin stendur fyrir morgunfundi um Sundabraut kl. 9 í dag. Fyrirhuguð framkvæmd verður til kynningar ásamt áherslum í komandi umhverfismati.

Fund­ur­inn er í beinu streymi á mbl.is. 

Farið verður yfir hvaða valkostir eru til skoðunar varðandi legu Sundabrautar auk tenginga hennar við byggð og atvinnustarfsemi. Auk fulltrúa Vegagerðarinnar verða á fundinum fulltrúar verkfræðistofunnar EFLU sem er ráðgjafi í Sundabrautarverkefninu.

Vegagerðin í samvinnu við Reykjavík vinnur nú að undirbúningi Sundabrautar frá Sæbraut að Kjalarnesi. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta, dreifa umferð og bæta tengingar við og innan höfuðborgarsvæðisins, stytta akstursleiðir og ferðatíma og minnka þannig útblástur og mengun.

Áætlaður framkvæmdatími er á árunum 2026-2031. Framkvæmdin verður boðin út sem samvinnuverkefni.

Nánar um dagskrá fundarins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert