Prófkjöri Viðreisnar fyrir komandi borgarstjórnar er lokið. Var þetta fyrsta prófkjör Viðreisnar og völdu flokksfélagar þar frambjóðendur í fjögur efstu sætin á framboðslistanum.
Niðurstöðurnar eru eftirfarandi:
Á kjörskrá voru 1.939 manns og bárust alls 1.182 atkvæði. Kjörsókn var 60,96%. Af þeim voru 4 atkvæði auð en ekkert ógilt.
Þetta eru úrslit prófkjörs sem hafa verið afhent uppstillingarnefnd sem síðan þarf að stilla upp lista í samræmi við reglur Viðreisnar, þ.m.t. varðandi kynjahlutföll.
Fólk gat valið hvort það kysi rafrænt eða skriflega en mun fleiri völdu fyrri kostinn, að því er segir í tilkynningu.