„Steinar úr eldgosinu féllu eins og haglél,“ sagði maður sem staddur var á eldfjallinu Ontake í Japan þegar það fór að gjósa í gær, í samtali við breska ríkisútvarpið. „Við gátum ekki andað svo við héldum handklæðum fyrir munnum okkar. Við gátum ekki heldur opnað á okkur augun.“