„Við gerðum okkur þetta erfitt fyrir og missum einhver sjö, átta hraðaupphlaup. Sóknarlega í fyrri hálfleik þá vantaði okkar lykilmenn sem voru bara ekki með,“ sagði Gunnar Magnússon eftir sex marka tap ÍBV gegn Valsmönnum í sjöundu umferð Olís-deildar karla í handknattleik.