Fyrr í mánuðinum var opnuð sýning í Hafnarhúsinu með verkum austurríska listamannsins Gunters Damisch en hann hefur gefið öll 42 verkin á sýningunni til Listasafns Reykjavíkur. Öll verkin nema eitt eru þrykk og Damisch, sem er prófessor við listaháskólann í Vín, nýtur mikillar virðingar í heimalandinu.