Þær voru glæsilegar gólfæfingarnar hjá rússnesku fimleikakonunni Irenu Sazonovu á Reykjavíkurleikunum í dag eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði. Irena sigraði í kvennaflokki á fimleikamótinu í dag með 53,1 stig en hún vann einnig keppni á öllum einstökum áhöldum.