„Ég held að það sé verri tilfinning fyrir Guðmund en okkur að hann verður andstæðingur okkar,“ segir Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik karla, um viðureignina við Dani í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í handknattleik í kvöld, spurður hvort það setji annan svip á viðureignina sú staðreynd að Guðmundur Þórður Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, situr nú hinum megin borðsins.