Dómarinn Sergio Mattarella frá Sikiley var kosinn forseti Ítalíu í dag. Mattarella er af mörgum álitinn táknmynd baráttu Ítala gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Hann er annálaður fyrir heiðarleika en hann hóf stjórnmálaferil sinn eftir að eldri bróðir hans var myrtur af mafíunni á Sikiley.