Stuðningsmenn Seattle Seahawks og New England Patriots hafa í dag flykkst til Phoenix í Arizonaríki Bandaríkjanna en í kvöld verður barist um meistaratitilinn í NFL-ruðningsdeildinni, í svonefndum Ofurskálarleik. Seahawks eru meistarar en geysierfitt þykir fyrir lið að verja meistaratitilinn.