Hjónin Einar Guðmundsson og Ásdís Svava Hrólfsdóttir voru glöð en eilítið hlessa þegar þau veittu bíllyklunum að glænýjum Volkswagen e-Golf viðtöku í Hádegismóum í dag. Bíllinn var gjöf frá Morgunblaðinu sem efndi til happdrættis meðal áskrifenda í janúar.