Gagnagíslataka hefur færst gríðarlega í vöxt á undanförnum misserum og tölvuþrjótar herja í sífellt ríkari mæli á snjallsíma. Ná þeir yfirtökunum þegar grunlausir símeigendur sækja sér það sem þeir halda að séu forrit. Með forritunum loka þrjótarnir símunum og neita að opna nema lausnargjald sé greitt.