Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi og Fatimusjóðsins fyrir menntun sýrlenskra flóttabarna hófst í gær, fimmtudaginn 6. mars. Fjölmargir leggja sitt af mörkum, þar á meðal stúdentar við Háskóla Íslands sem selja póstkort og bækur á Háskólatorgi - og rennur ágóðinn óskertur til söfnunarinnar.