Andreas Lubitz, flugmaðurinn sem var við stýrið þegar vél Germanwings brotlenti í frönsku Ölpunum, hefur verið rannsakaður í þaula í dag. Ljóst þykir að Lubitz hafi flogið vélinni viljandi á fjallið og þannig svipt bæði sig sjálfan og 149 aðra lífi. Fjölmiðlar hafa fjölmennt í heimabæ hans til þess að reyna að færa almenningi frekari upplýsingar um hver Lubitz var í raun.