Allt bendir til þess að 650 manns hafi farist með flóttabát á Miðjarðarhafi í gær en einungis 50 af þeim 700 sem voru um borð hafa fundist á lífi. Ef þetta reynist rétt er þetta mesta manntjón sem orðið hefur á Miðjarðarhafi þar sem flóttamenn reyna að komast til Evrópu í leit að betra lífi.