Bosco Ntaganda er frá Rúanda er flúði sem unglingur til Austur-Kongó þar sem hann stýrði skæruliðum í baráttunni gegn stjórnvöldum. Hann er með viðurnefnið „tortímandinn“ vegna þess miskunnarleysi sem hann sýndi fórnarlömbum sínum. Hann er sakaður um morð, nauðganir og barnahernað.