Mikið tjón hlaust af eldsvoða í gærkvöldi þegar kveikt var í gámi Fjölskylduhjálpar Íslands í Iðufelli. Öll kertaframleiðsla samtakanna fer jafnan fram í gámnum en sala kertanna er einn af meginliðum fjáröflunar þeirra fyrir jólin. Meðfylgjandi myndskeið tók sjálfboðaliði samtakanna af eldsvoðanum.