Lýsing í vatnskrönum og færanlegir vaskar, ásamt skápum og salernum sem hægt er að lyfta upp og niður með fjarstýringu, eru á meðal þeirra nýjunga sem er að finna í nýju húsnæði Öryrkjabandalagsins í Sigtúni. mbl.is kom þar við í gær en mikil vinna fór í að útfæra öll smáatriði sem bæta aðgengi þar.